Ok, hann er virkilega geðveikur hann Brent, hann var það svosem áður, en að fá kast og kenna Lucy um að hann hafi klúðrað naglalökuninni, basically kenna henni um allt, og verða svo svona eins og lítil grenjandi stelpa, væminn og þannig, og “breytast” svo allt í einu í þessa Marion, hann er virkilega eins og geðklofi núna. Spá mín fyrir morgundaginn er að hann kemur að Alan-Michael og Lucy þegar hún er að segja honum frá því að hún gæti verið smituð, eða að hann heyrir það bara, og ég vil ekki að það gerist..
Fyrst þegar ég las þennan spoiler um að hann kæmi aftur sem einhver Marion (segi ekki meira) það var í kringum þann tíma þegar Alan var að reyna að fela hann, og svo fór hann með Brent inn í þetta herbergi sem hann var í, og þeir töluðu eitthvað saman, þátturinn minnir mig endaði á því að Alan sagði að Brent yrði samt að gjalda fyrir það sem hann gerði, og svo lokaði hann hurðinni, Brent lá þarna varnarlaus, guð minn góður út frá þessum spoiler hélt ég að Alan ætlaði að gelda hann eða eitthvað, svo að hann færi í kynskiptiaðgerð og yrði þá þessi Marion. Það rættist ekki alveg..
- MariaKr.