Já ok. Já, Matt sagði Ross frá Dinuh og síðan kom hún og þá fór Matt. En Ross trúði Matt á endanum og sagði Dinuh að fara út. Síðan ætluðu
Matt og Ross að segja Vanessu frá því sem Dinah gerði, en Dinah frétti af því þannig hún kom inn og byrjaði að afsaka sig og e-ð… ,,ég ætlaði
ekki að gera þetta…“…. En þá kom í ljós að Matt og Ross voru ekki byrjaðir að segja Vanessu frá þessu, þannig hún sagði það eiginlega sjálf.
En í þættinum á fimmtudaginn (20.apríl) endaði þátturinn með því að Vanessa og Ross sáu Dinuh og Roger kyssast. Sko, Blake er eiginlega búin að
sætta sig við hjónaband Holly og Fletcher og hún ætlaði að halda veislu fyrir þau á The Towers.
En Fletcher missti það óvart útúr sér við Roger.
En síðan komu Dinah og Roger þangað og allir sáu kossinn, Vanessa, Ross, Matt, Blake, Holly,
Fletcher, Ed, Lillian, Josh og Annie. Og Ross brjáðalist alveg og sagði Roger að halda sig fjarri frá Dinuh. En þau héldu áfram bara að
dansa og e-ð. Blake var líka reið. En sían sagði Dinah svona: ,,Roger er ekki bara herrann minn eða dansfélagiinn minn, hann er my lover”. Sagði hún og Ross bara AAAAA!!!
En með Lucy og það, þá kysstust þau A-M og hún á þriðjudaginn, finally!! En Eleni var farinn að hafa áhyggjur af HIV og hvort Brent hafi verið
HIV jákvæður. Og hún spurði Lucy hvort hún hefði verið búin að sofa hjá A-M en hún sagði náttlega nei. En í þættinum í gær (21.apríl) þá sagði Eleni
Nadine frá þessu og Lucy sá bækling um HIV sem þær voru með og þá sögðu þær henni frá þessu. En Lucy vildi ekki trúa að Brent væri með HIV og
hann hefði kannski smitað hana ef hann væri með það. En síðan sammþykkti Lucy að fara í HIV próf.
Já, og Frank og Buzz fóru út að leita að systur Brents einhvert lengst út í buska, en síðan urðu þeir bensínlausir og Frank fór eitthvað að tala
um að Buzz hefði ekki verið góður faðir og e-ð, þá fór Buzz. En síðan kom Buzz að húsi þar sem ein kona var. En þetta var ekki bara venjuleg
kona, þetta var Reva!! En Buzz hafði aldrei séð Revu þannig að hann þekkti hana ekki. En Reva er á lífi sko, hún er bara búin að vera í dái í öll
þessi ár eða e-ð…. En þau fóru að tala saman og síðan sagði Buzz að hann væri frá Springfield, og hún kannaðist náttlega við það. En hann fór
og kom aftur til Franks en hann er ekki búinn að segja neinum frá Revu.
En Josh og Annie eru að fara að gifta, eins og þú kannski veist, en þau þurfa að bíða í e-ð 2 ár af því að það þarf að lýsa Revu dána en það tekur oftast
7 ár, en Reva er búin að vera “dáin” í bara 5 ár. Það er komið í ljós að Annie er áfengissjúklingur þar sem hún fór á AA fund og EWd sá hana.
En Annie og Rick voru gift í Chicago en Ed vissi ekkert af því, og vandamálið milli þeirra var drykkjan. Og Rick sagði Ed að hún hefði haldið framhjá.
En Josh veit ekkert af drykkjuni og ekki að Annie og Rick voru gift.
Ég held að þetta séu svona aðalatriðin, ég nenni ekki að skrifa meira. En ef það er e-ð sem ég gleymdi, ég skrifa það bara seinna.