Afhverju eru Drew og Libby hætt saman? hef ekki horft lengi… síðast þegar ég horfði voru þau að fara að gifta sig, og svo núna er allt í köku… hvað skeði??

Þið miskiljið, Það er ekki bara út af því að hún getur ekki eignast börn. Eftir slysið vorkennir hún sjálfri sér svo mikið að ekkert er nógu gott fyrir hana, ef þið horfið á þættina með smá áhuga og eldmóði sjáiði það…

———– Im a Rock ´n Roll star, not a Rock star, Rock stars are smelly… ———–
Þetta er útaf börnunum. Hún sagði það sjálf í dag, hún vill ekki vekja hjá honum einhverjar falskar barnavonir en hann hefur sjálfur sagt að honum sé sama um barnaleysi, þannig að þau byrja örugglega saman aftur á endanum.

Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel
Nei, ef þú vissir hvað gersit í framtíðinni myndiru vera sammála mér dwarfinn þinn…

———– Im a Rock ´n Roll star, not a Rock star, Rock stars are smelly… ———–
Hún hugsar sem svo að hún vilji ekki gera Drew það að binda hann við einhverja konu sem getur ekki eignast börn. Hann er nefninlega svo mikill barnakall og hefur alltaf langað að eignast fullt af börnum. En auðvitað gefur hún honum ekki þá ástæðu heldur segist bara vera hætt að elska hann. Hún heldur að hún sé að gera honum einhvern greiða með þessu :/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..