Jæja, erum við ekki komin með fullnóg af þessum draugalátum í Reva, við vitum öll að hún kemur til baka right? Fara þeir ekki að hætta þessu og láta hana birtast for real…. Atriðið í dag með henni og Annie var ferlega hallærislegt…
Eins og Joey Tribiani sagði forðum daga “I wanted to rip my arm of just to have something to throw at her ” Á við allt þetta dæmi, þolinmæðin er löngu búin. Og eins og ég hugsaði fyrir nokkru síðan, var ÞETTA hin frábæra endurkoma Revu sem maður vissi alltaf aftast í huganum að væri væntanleg? Frekar hefði ég viljað að hún kæmi ekki nálægt Ljósinu í minnst ár í viðbót. En Josh greyið hafði víst ekkert að gera lengur..
Ahahahahaha mér finnst þetta svo hallærislegt, en get ekki annað en horft og hlegið samt ;) Og jú ég vissi að hún kæmi aftur, en datt ekki í hug að hún kæmi aftur sem draugur… eða andi eins og hún vill láta kalla sig! En pæliði samt í einu… ef að Reva er ekki dáin og hin eina sanna Reva í öllu sínu holdi og blóði kemur aftur… hvernig á þá að útskýra andann?!?!
Ég bjóst við “fyrirboða” skýringunni, en það var bara eftir að Josh sá hana í Cross Creek. Þá hefði verið eins og hann hafi “dreymt” fyrir um komu hennar, en nei, til mikillar furðu er enþá verið að draga þetta áfram.
Einmitt!! Ég var svo mikill Revu aðdáandi þegar ég var yngri… núna er hún komin í svo hallærislegt hlutverk að ég veit ekkert hvað ég á að halda um hana!
Elska hana samt smá ennþá þó svo að Reva the Ghost fari í mig :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..