Í stuttu máli var þetta svona:
* Seth og Summer fóru í pásu…
* Seth, Sandy og Ryan fóru til Miami að hitta mömmu hans Sandy…
* Marissa fór með Trey að leita að vinnu og ákvað að “sjá um hann” á meðan Ryan væri í Miami…
* Kirsten var eftir heima á meðan strákarnir og Sandy fóru til Miami…
* Carter tilkynnti Kirsten að hann væri að fara að hætta að vinna í blaðinu því hann fékk betri vinnu í New York…
* Kirsten ákvað að bjóða honum heim til sín í mat sem og hún gerði og það kvöld endaði á að þau kysstust!
* Zack bauð Summer í mat heim til sín einnig…
* Í Miami hitti Seth stelpu (Mary Sue) sem hann tapaði veðmáli við og þurfti í staðinn að sleikja af henni þeyttan rjóma í beinni útsendingu í einhverjum frægum sjónvarpsþætti…
* Summer sá það í sjónvarpinu heima hjá Zack og kyssti Zack til að hefna sín á Seth…
* Kærasti stelpunnar varð mjög reiður og ætlaði að lemja Seth því hann var búinn að spilla Mary Sue.. Hún var víst í einhverjum biblíuskóla…
* Mamma hans Sandy var trúlofuð yngri manni sem hún ætlaði að giftast í júní…
* Sandy hræddi eitthvað tilvonandi fósturpabba sinn þannig hann stakk af…
* Trey fékk vinnu við að þrífa klósett…
* Marissa og Trey áttu saman kvöldstund, drukku áfengi og ætluðu að horfa á spólu saman…
* Marissa vildi fara út að fá sér ferskt loft og fór út…
* Trey sagðist ætla að ná í jakkann sinn en hann fékk sér dóp í nefið í staðinn…
* Þau löbbuðu á ströndinni og svo “réðst” Trey á Marissu.. Reyndi að kyssa hana og var mjög harkalegur við hana… (nauðgun?)
* Hún komst í burtu frá honum grátandi…
Þetta er svona það helsta! :)