Brooke er skemmtilegasta persónan í þáttunum!
Það stoppaði ekki Taylor að giftast Ridge þó að Brooke væri ólétt eftir hann (allir héldu það þá og faðernisprófið sýndi það líka þá …) svo ekki sé minnst á að hún stakk undan Brooke (svo að segja í upphafi) …
og svo þegar hún “sneri til baka frá dauðum” þá voru Brooke og Ridge hamingjusamlega gift - og að því er allir best vissu áttu barn saman - hikaði hún ekki við að komast upp á milli hjónanna!
og í kjölfarið þegar að Ridge fór í soulsearching ferð upp í big bear þá bað hann Brooke, Taylor og Stephanie um að gefa sér NÆÐI til að hugsa málin … brooke varð við því og að vissu leyti taylor NEMA ef frá er talið að stephanie fór þangað til að sannfæra hann um að börnin væru aukaatriði - hann ætti að elta það sem gerði HANN hamingjusaman …
Af hverju gildir það ekki í báðar áttir? akkuru á hann ekki að vera með Brooke þó hann eigi börn með Taylor ef það er Brooke sem gerir hann SANNARLEGA hamingjusaman?!?!
En ég vil ekki sjá þau saman … ég HATA ridge og vildi helst sjá standa uppi einan og allslausan … múhahaha!