Ég er dyggur stuðningsmaður Seth og Summers … en ég vil ALLS ekki sjá þau byrja að stinga saman nefjum meðan hún er ENNÞÁ með Zach, hann er alltof góður til að þau geri honum það!
Og Marissa og Ryan … ég vil ALLS ALLS ALLS ekki sjá þau saman aftur! hún er “bad news”! hann þarf ekkert alka sem kærustu, það var nóg að alast upp hjá einum slíkum! Djí! það verður farið að snjóa í helvíti áður en ég sætti mig við samband á milli þeirra, sem er eitthvað meira en vinátta!
Marissa og Alex … hún er POTTÞÉTT að nota Alex, vitandi eða óafvitandi, rétt eins og garðyrkjumanninn (man ekki nafnið) til að pirra mömmu sína … og týpísk hugsunarlaus Marissa, sem heldur að heimurinn snúist um rassgatið á sér, að fara ekki á sjúkrahúsið að athuga hvort það væri í lagi með Caleb … veit að þetta er ekki draumastjúpinn EN hann er eiginmaður mömmu hennar, afi vinar hennar, pabbi “vinkonu” hennar o.s.frv…