Ég held (veit ekki) en ég held að þessi bróðir Lyn sem kom þarna og sagði “what have you done to my father” ég held að hann haldi að Steph hafi kæft hann í koddanum sem hún var að baslast með.
ojj… hvað það er ömurlegt ef hann fer að vera með eitthvað vesen… :s ég meina greyið Steph, afi hennar var að deyja og maðurinn hennar var sendur á spítala… :S
ég veit hvað gerist! fer alltaf inná á offical síðuna og svindla..núna ef þið missið af þætti verðið þið að horfa á endursýninguna.. Vil ekki eyðileggja fyrir neinum.. :)
Paul er sonur Jim Robinson. Þessi fjölskylda var í þáttunum þegar þeir byrjuðu fyrst. Paul var mikill athafnamaður og var með skrifstofu þar sem Karl er núna með læknastofuna. Hann er marggiftur, síðast giftur Christinu Alessi (sem var tvíburi) og átti með henni einn son. Þau fluttu burt, ég man ekki af hverju.
Ég held að það sé alveg pottþétt að það var ekki Paul sem kveikti í. Gus er mun líklegri til þess, sérstaklega til að kveikja í kaffistofunni eftir að Izzy hafnaði honum. Ég held samt að hann hafi bara ekki náð því. Er enginn nema ég sem hugsar til Luca? Það var ákkúrat hringt í Lil út af Luca, sagt að hann væri horfinn. Og svo er hann nú þekktur brennuvargur. Brenndi hann ekki skólann sinn eða eitthvað og svo töskuna hans Davids. Mér dettur hann í hug. Dettur samt reyndar ekki í hug af hverju hann hefði átt að kveikja í þessum tveimur stöðum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..