Hún virkar á mig sem algjör tík. :P Hef aldrei séð hana áður. Vonandi er hún nú ekki eins slæm og mér finnst við fyrstu sýn. Annars giska ég á að hún eigi eftir að stinga undan Vanessu og kannski spilla á milli Blake og pabba síns líka!
Vanessa á það nú alveg inni hjá henni að hún sé reið og fúl við hana … gaf hana í sirkus!
OK, til að vera sanngjörn við Vanessu, þá náttla vissi hún ekki að barnið myndi enda í farandsirkus en manni finnst það soldið lélegt að litla aumingja ríka stelpan sem er í góðu sambandi við bæði foreldra sína OG barnsföður taki þá ákvörðun að gefa barnið sitt! Manni finnst eins og það sé svona neyðarúrræði …
Sammála með Dinuh og Roger.. vissi um leið að þau ættu eftir að ná saman :) En ég hef saknað hennar ekkert smá í þessum þáttum og vona að ég eigi ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum :/ Man alveg þegar hún og AM voru saman og svona, good times good times :)
En þá var Dinah svo saklaus og góð … en nú virðast allir vera að gruna hana um græsku! eina sem ég hef séð af henni eftir að hún kom til baka var í endann í dag þegar hún fékk bílinn hennar blake “lánaðann” … svo það er spurning hvort að hún hafi gengist undir persónuleikabreytingu, eins og svo margir aðrir í ljósinu?!?!
Einmitt, Frakkland breytti henni!! :/ En ég vona bara að það sem að hún bað Matt um að leyna muni ekki gerast! Þetta með að fá lánaða peninga frá foreldrum sínum og svo splitta… Ég bíð spennt eftir að hún hitti AM :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..