Hvað er eiginlega að honum?! Ég er farin að hata hann. Þessi maður kemur þarna inn og biður uj hjálp við að finna konuna sína og hann bara öskrar á hann að hann sé að leyna einhverju, þegar það var MJÖG augljóst að hann var í miklu uppnámi og var mjög áhyggjufullur.
Allt í lagi að vera pissed off yfir þessu Eleni-máli, í svona 2 tíma, ekki meira. GET OVER IT!
Svo gat ég ekki betur séð en að Roger væri baar einmitt á leiðinni á þennan skíðastað og ég þori að veðja lífi mínu upp á það að hann á eftir að koma að Holly og Fletcher í rúminu. Og vona auðvitað að það gerist, það er kominn tími fyrir þennan mann að fá að finna bragðið af eigin meðulum.
By the way, var það bara ég eða var talið þokkalega á eftir varahreyfingunum? Ég get svo svarið það að varirnar á fólkinu byrjuðu að hreyfast áður en það talaði!