Lyn er óánægð í hjónabandinu sínu og vill ekki flytja út í sveit til Joes. Hún er því að íhuga skilnað, sem Steph er andvíg en sýnir öllu meiri stuðning. Lyn er einnig farin að stunda búðarhnupl vegna óánægju sinnar.
Travis (plakatagaurinn) kveikti í eldhúsinu hjá Hoyland-fjölskyldunni og þar sem að Boyd fannst löggan alltof svifasvein þá ákvað hann að taka til sinna ráða. Hann faldi sig í skottinu hjá Travis og hringdi svo í lögguna þegar hann var kominn heim til Travisar … Þegar að Travis og einhverjir fleiri fantar tóku eftir honum flúði hann undan þeim, og varðhundinum, upp í tré:-) en sem betur fer fyrir hann þá er stu á leiðinni!
Sky og Lana verða gefnar út í blaði fyrir samkynhneigða og það gladdi Boyd lítið, sér í lagi eftir að hann komst að því að Sky hafði gefið í skyn við blaðamanninn að þær væru par!
Luka var hentugur líffæragjafi handa lil og Svetlanka er LOKSINS búin að segja Serenu að Luka sé bróðir hennar. Hún bað hana þó um að þegja yfir því þar sem að móðir hennar mætti ekki við neinum áföllum í bataferlinu.
Lou komst að því að Connor var konan sem hann hafði fallið fyrir á netinu og varð vægast sagt ekki ánægður með það! En Carmela er komin aftur (því miður) og er eitthvað að eltast við Connor …
Stu kyssti Sindy … hann vildi þegja yfir því en Sindi var nöguð af samviskubiti og ákvað að segja Toadie frá kossinum. Hann varð alveg bandbrjálaður og vill ekkert meira með Stu hafa:-(
Þetta held ég að sé svona aðalatriðin af því sem hefur gerst:o)