Þetta er EKKIspoiler þannig að ekki henda þessu, þetta er bara það sem ég held að eigi eftir að gerast og það er verið að byrja að gera þetta……… Getur ekki verið spoiler vegna þess að ég veit ekkert hvort þetta sé satt eða ekki, ég held þetta bara! Er næstum viss samt…!

Ég held að Luka sé bróðir Serenu!!
Muniði eftir því þegar Lil fæddi andvaka strák? Og þegar mamma hennar og hún voru að rífast síðast og lil sagði henni hvernig henni leið þegar strákurinn var tekinn í burtu frá henni og þá sagði Svetlanka að hún hafi ekki viljað að hún hefði átt barnið útaf henni fannst það svo mikil skömm fyrir Lil að eiga barn sem átti engan faðir…

Ég held að hann hafi ekkert fæðst andvaka.. Ég held að Svetlanka hafi tekið hann og sagt að hann hefði dáið og látið einhverjar aðra ala hann upp eins og þegar hann kom fyrst var hann að tala um að hann væri ættleiddur og honum langaði að finna alvöru foreldra sína!
Svo líka er Svetlanka geðveikt á móti því að þau séu saman… ÚTAF ÞVÍ AÐ ÞAU ERU SYSTKINI!
Svo líka er lil veik og enginn getur hjálpað henni nema þeir sem eru í sama blóðflokk og hún og mjög ólíklegt að það séu einhverjir aðrir en nánustu ættingjar…
Ég held að hann eigi eftir að hjálpa henni ÚTAF HANN ER SONUR HENNAR!

Djöfull passar þetta allt saman..
Er einhver sem er búinn að vera að pæla í þessu líka??