Jess! Ég er búin að bíða eftir þessu momenti svo lengi að þið getið ekki ímyndað ykkur það!! Loksis fór Mindy frá Nick. Það hefði þó verið skemmtilegra ef Nick hefði farið frá Mindy..

En hvað átti það að þýða hjá Nick að brjálast við Alex? Hann hefur engin efni á því að vera fúll við hana. Það var HANN sem skrifaði undir skjalið, gjörsamlega ótilneyddur og Alex vissi ekki að Mindy myndi fara frá honum. Hann er orðinn svo hundleiðinlegur og frekur að ég er ekki frá því að Melinda sé ofar á vinsældarlistanum mínum. Ekki var hún þó mikið skárri, hraunaði líka yfir Alex og segist fyrirlíta hana.


Og núna eru það helstu spurningarnar:

*Mun Mindy koma aftur til Nick og fyrirgefa honum? -Ég stórefa það. Ég myndi ekki einu sinni fyrirgefa honum og í fyrsta sinn á ævinni skil ég hlið Mindyar á málinu.

*Mun eitthvað verða á milli Roger og Alex (það sáu náttlega allir hvað han sagði)?-ég efa það líka, en Alex gæti aftur á móti reynt að notfæra sér þessa nýju vináttu hennar og Roger.

Það væri gaman að fá að vita hvað þið haldið!