Ég held að Nathan og Haley nái aftur saman pottþétt. Það hlýtur bara að vera. Ég held að Nathan sé ennþá veikur fyrir Haley, og muni vera með henni. Held að það sé augljóst að Haley vilji vera með Nathan ( geri mér ekki alveg grein fyrir hvort að þau voru hætt saman, eða ekki?:S) fyrst að hún var að koma þarna aftur, og var búin í síðustu þáttum að tala um að fara aftur, þangað til að Dan kom og sýndi henni skilnaðarpappírana eða hvað sem að það var aftur.
Brooke flytur örugglega ekki fyrir fullt og allt, það getur ekki verið. Reyndar held ég að þessir samningar til 7 ára sem að einhver hérna á korkinum var að tala um skiptir ekki miklu máli í rauninni vegna þess að ég HELD að leikararnir geti farið hvenær sem er, ég meina þeir eru pottþétt ekki bundnir hvað sem að gerist, hvað ef að einhver þeirra veikist eða eitthvað?
Og já, Dan deyr örugglega ekki, eins og ég sagði á öðrum þræði hérna, það verður að hafa allavega eitt illmenni í þáttunum hehehe!
Og já sammála líka með Lucas og Nathan, held að þeir verði aftur vinir með tímanum.
En hef oft verið að pæla í einu sem að ég tók eftir í lokaþættinum á mánudaginn var, þetta með hjartalyfin hans Lucas og hann átti bara eina pillu eftir, skil ekki getur hann ekki sjálfur borgað þetta? Er þetta það dýrt, var það málið? Vegna þess að Dan sagðist ekki ætla að borga lyfin aftur :S