Þáttturinn í dag (18/7/05) var geðveikur!!

Ég vona svooo mikið að Frank og Eleni takist að telja Nadine og Buzz á að vera kyrr. Mér væri svo sem sama þó að Nadine léti sig hverfa en ég ELSKA Buzz. Ég hef nú reyndar gefið það skýrt fram að mér finnist að Buzz eigi að vera með Nadine en ég hef skipt um skoðun. Hann á að vera með Jennu. Reyndar er Jenna frekar neðarlega á vinsældarlistanum mínum en Nadine gerir ekkert nema að væla!! Þá vil ég frekar sjá Buzz vera með einhverjum sem maður hatar en finnst samt skemmtilegur heldur en einhverri hlandgulhærðri grenjuskjóðu. Jenna og Buzz eru miklu sætara par.


Það var líka svo fyndið að sjá svipinn á Mindy litlu þegar hún komst að því að maðurinn hennar stóð fyrir því að knésetja Lewis Oil. “Oh, Nick. How could you?” En hjartnæmt moment. (Eða hitt þó heldur, þetta var kaldhæðni ef þið skylduð ekki fatta það) En Mindy, það er svo sem skýring á þessu. Hún er mjög einföld; fjölskyldan þín sökkar. Það verður mjög gaman að sjá hvað hún segir við Nick í þættinum á morgun. Vonandi verður þetta til þess að þau skilji. Muhaha, ég er svo mikil tík þegar Mindy á í hlut. Ég óska henni alls ills.