Ég verð að segja að þetta veldur mér ógeðslega miklum vonbrigðum! Mér var búið að hlakka gegt til að þau myndu hittast og svo er hún bara leiðindin uppmáluð. Bara eins og vanalega. Hún (Vanessa) fer ógeðslega í taugarnar á mér þessa dagana. Svo vogar hún sér að fara til Matt og segja: “Ég kom bara til að ná í þetta sem ég gaf þér.” Ég meina hver gefur einhverjum eitthvað og fer svo og tekur það til baka?!?! Gott á hana að hann er búinn að týna þessari lyklakippu eða hvað sem þetta var! Haha.