Tja, ég man nú ekki alveg hvað gerðist í hvaða þætti nákvæmlega en ég skal rifja upp eitthvað smávegis frá síðustu dögum.
Susan sagði séra Tom að hún hefði tilfinningar til hans og að hún gæti þess vegna ekki verið vinur hans. Hún er samt alveg að drepast yfir því að geta ekki hitt hann en vildi ekki svara í símann þegar hann hringdi til að spyrja eftir henni.
Kartan og Sindi eru svona eiginlega byrjuð saman aftur. Hann bauð henni í mat og áður en hún kom pakkaði hann saman myndum af Dee. Síðan kysstust þau og eitthvað svoleiðis þegar hún kom.
Jack er úti að djamma öll kvöld með þessari stelpu sem hann kynntist. Mamma hans hitti þau saman einn morguninn á kaffistofunni þegar þau voru að koma af djamminu. Hún sagði svo við hann seinna að hún skammaðist sín fyrir hann, af því að hann hegðar sér svona.
Lil er hrædd um að David sé að halda fram hjá og fór með Lyn að elta hann á bílnum. Þær sjá hann með einhverri konu og Lil heldur auðvitað að það sé viðhaldið (mig og fleiri grunar að þetta sé nú samt bara einkaþjálfari).
Stuart er byrjaður í Löggunni.
Strákarnir á nr. 30 eru að reyna að fá lánaða peninga hjá foreldrum sínum til að geta gert tilboð í húsið. Connor getur ekki beðið sína foreldra en bað Lou í staðinn en hann sagði nei.
Darren fyrrverandi kærasti Libbyar er kominn aftur og er með eigið fyrirtæki, (rafmagns eitthvað) og hann kom að gera við eitthvað heima hjá henni. Síðan fór hann á kránna og hitti gamla vini og var boðið í grillveislu í Ramseygötu og þar hittust hann og Libby aftur.
Þetta er svona það helsta held ég.