Það sem ég man er allavega að Eleni og Nadine voru að horfa á myndbandið frá seinna brúðkaupi Eleni og Franks. Þar er Buzz að tala fallega um bæði Nadine og Jennu. Nadine fer í rusl þegar Buzz segir á myndbandinu að hann vilji vera með Jennu o.s.frv.
Jenna kemur til þeirra að leita að Alan-Michael. Eleni er kuldaleg við hana en Nadine er virkilega elskuleg og lánar henni myndbandið úr brúðkaupinu. Ég held að Nadine sé með eitthvað samviskubit þar sem hún veit að Jenna og Buzz vilja vera saman en m.a. hennar vegna eru þau það ekki og Jenna heldur að þau séu gift og líður frekar illa.
Í dag var Jenna svo að horfa á myndbandið en var ekki komin svo langt að sjá Buzz tala um sjálfa sig.
Síðan man ég að Kat eiginlega sagði David upp í bréfi, ætlar að vera lengur í Evrópu og hugsa og eitthvað.