Sko, Það er ekkert búið að sýna með Clarke eða neitt þannig. U, Deacon “kom til fundar” með Forresterunum og Spectrunum og var búinn að ákveða sig hvað hann ætlaði að gera með barnið. Hann vill eiga það sjáfur, sagð'ann. Þau voru steinhissa og sögðu honum að það kæmi ekki til mála. Ef þú varst búin að sjá föstudagsþáttinn þá var í endanum þannig að það datt eitthvað ljós á höfuðið á Brooke.
Á mánudeginum: Thorne kom og Megan hringdi í 911/112. Það var líka að fara að detta e-ð til þess að halda myndavél eða e-ð en Thorne velti Brooke yfir. Kimberly bað Giovanni að leyfa Kimberly til að vera ein með Thorne í myndatökunni. Brooke vaknaði loksins. Megan sagði Bridget það sem gerðist fyrir Brooke. Á þriðjudeginum: Deacon var ennþá að pirra fólkið þarna, en var ekki búinn að segja neitt hvað hann vildi ennþá. Brooke og Thorne voru að tala saman um þau og hvernig þau þyrftu að “move on”. Bridget var að hlusta/hlera og hvernig þau töluðu við hvort annað og hvernig Thorne talaði við Brooke, þá fór Bridget að skilja betur og fór bara að gráta án þess að þau vissu af henni. Hún fór til Kimberly og sagði að hún vildi ekki taka þátt í þessu lengur, hún vildi ekki stía þeim sundur lengur. Kimberly var andvíg því en sagði bara ok. Bridget sagði henni að þau væru í alvöru ástfangin. En Kimberly bað Bridget um að segja þeim aldrei um nóttina sem Thorne heldur að hann og Kimberly hafa sofið saman, sem þau gerðu nefnilega ekki. Bridget sagðist ekki vilja ljúga lengur og hún gat ekki lofað neinu. Deacon sagði fólkinu að hann vildi sjálfur eiga Eric litla og þar sem hann er raunverulegi faðir hans má hann gera “hvað sem hann vill”.
Takk, bæææ!