Ja sko, hann fékk blóðtappa eða heilablóðfall eða eitthvað svoleiðis. Hann er eitthvað smá lamaður allavega í efri hluta líkamans, öðru megin. Þetta gæti samt lagast alveg með tímanum. En hann virðist hafa ruglast eitthvað smávegis líka. Maður sá það t.d. þegar hann var að segja fyrir framan alla að hann héldi meira upp á Sky en Serenu (sem ég skil reyndar alveg) og að Serena tímdi aldrei að eyða neinu í hann og svona. Þetta er eitthvað sem Harold myndi aldrei segja ef hann væri eðlilegur.