Er einhver sem veit eitthvað um Michelle Bauer? Hún sagði áðan í þættinum að mamma hennar hefði ættleitt hana. Er Ed alvöru pabbi hennar eða ættleiddi hann hana líka?
Ed hélt framhjá Maureen fyrir löngu síðan og Michelle fæddist. Barnsmóðir Eds var eitthvað veik eða geðveik, man ekki alveg hvað var með hana. En Ed og Maureen tóku Michelle að sér svo Ed er alvöru pabbi hennar en Maureen fósturmamma. Þau tóku Michelle þegar hún var alveg nýfædd.
Ahh…hver getur gleymt Claire? Já, hún fékk fæðingarþunglyndi, fór burt, ég var miklu yngri þegar hún var, man þetta ekki 100%. Hann var minnir mig ekki giftur Maureen þá, það gæti verið rugl hjá mér.
En hey, ég var að komast að einu :D Bethany Joy Lenz leikur þessa Michelle, og þessi Bethany Joy leikur akkúrat líka Haley í One Tree Hill.. :D Skemmtileg tilviljun ;) Varð bara að koma þessu að :)
Já ég einmitt vissi að því líka.. fór á imdb.com og þar heitir hún einmitt Haley James-Scott og þá komst ég að því að þau myndu giftast.. varð ekkert smá reið sko!! En allavega þá er ég búin að sjá svona “love-video” af henni í Leiðarljósi ásamt stráki… bara 4 ár í það! :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..