Steph sagði Max frá öllu saman og hann sagðist elska hana enn þá og að hann vildi fá hana aftur. Hún bað hann um að hugsa vel um þetta og afleiðingarnar, m.a. á krakkana. Steph sagði við mömmu sína að Max myndi ráða öllum um framtíð þeirra. Max sagði Izzy frá þessu öllu og hún var mjög neikvæð og vildi alls ekki að Max segði krökkunum frá veikindum Steph og bara að hann ætti að gleyma henni og að þetta myndi fara illa með þau öll (hún var mjög ýtin fannst mér). Max ákvað hins vegar að segja krökkunum alla söguna og þau tóku þessu vel og ákváðu að styðja Steph. Boyd er samt eitthvað pirraður á þessu, sagði við Izzy að Steph hefði ekki treyst þeim fyrir sannleikanum o.s.frv. Síðan fór Max til Steph og sagði henni frá þessu, svo að væntanlega eru þau að taka saman aftur :D