Get nú ekki verið sammála þessu….af hverju á allt forrester klanið að fá að ráða með hverjum Thorne er og hverjum hann er ástfanginn af…ef Brooke er jafn slæm og allir vilja af láta er þá ekki betra að láta hana eyðileggja sambandið í stað þess að vera endalaust að plotta eitthvað?
ef ég á að segja alveg eins og er þá finnst mér flestir ógeðslegustu hlutirnir í þessum þætti hafa verið framdir af öðrum en brooke…hennar versti galli er að hafa verið með öllum forresterunum en eru þeir eitthvað skárri að velja alltaf þá konu sem “allir” hinir karlar í fjölskyldunni hafa verið giftir? held ekki!
og þetta macy-thorne samband er orðið óttalega þreytt…þau eru ENDAlaust að byrja saman og hætta aftur…mér finnst það liggja heldur ljóst við að þau eru ekki meant to be…því come on væru þau þá ekki happily married með 2,5 börn, hund og hvíta girðingu núna? nógan tíma hafa þau haft!
en kannski er ég nú ekki alveg hlutlaus…er búin að vera að láta mig dreyma um samband milli brooke og thornes síðan að allt var í hassi milli ridge og taylor síðast, hann með brooke og hún með thorne…þá eitthvað lá svo beint við að þau myndu dömpa þessum viðbjóðslegu noturum og taka saman sjálf…náðu eitthvað svo vel saman fannst mér þá…plottandi saman til að reyna að halda í helv…pakkið, sem er mun betur geymt saman, alltaf að rífast og þræta, en samt svooooo ástfangin…það þarf ekki brooke til að gera trouble í paradís hjá þeim…eru fullfær um það sjálf!
alla vega, þetta er mín skoðun:)