Hvítblæði
Hvítblæði (leukemia) er stjórnlaus skipting og fjölgun hvítu blóðkornanna. Til eru bráðvinn (acute) og langvinn (chronic) hvítblæði. Hvor flokkur um sig er kenndur við þá frumutegund sem er ríkjandi hverju sinni, þ.e. eitilfrumugerð (lymphoid)og mergfrumugerð (myeloid).
Rúmlega 30,000 tilfelli greinast árlega í Bandaríkjunum.
I. Bráðahvítblæði (AML og ALL)
Tíðni AML fer vaxandi uppúr fertugu. 60% tilfella af ALL eru í börnum.
Áhættuþættir:
Talið er að efnasambönd svo sem benzene sem fylgja iðnaði og mengun eigi hlut að máli. Fyrri saga um lyfja- og geislameðferð eykur vafalaust hættu á AML seinna meir og ýmsir erfðasjúkdómar s.s. Down´s syndrome.
Einkenni:
Þreyta, marblettir, blæðingar, hiti og sýkingar eru algeng einkenni í upphafi og eru rakin til blóðleysis, blóðflögufæðar og vanhæfra hvítra blóðkorna. Ýmsar truflanir geta orðið á blóðstorku.
Sjúkdómsgreining:
Grunur vaknar um hvítblæði ef hvítublóðkornin í blóðinu eru hærri en eðlilegt getur talist. Greiningin er yfirleitt staðfest með beinmergsástungu.
Meðferð:
Meðferð byggir á lyfjameðferð og jafnvel beinmergsflutningi. Í völdum tilvikum er beitt afbrigði A-vitamins (all-trans-retinoic acid).
HrannarM - Das und das einzig!
she's my escape from papercliptic strain and deadlines -
a cocktail of defeats and soundwaves drowning disturbing headlines.
she is not a trick or a quick solution,
she's a soothing drink of sweet seduction.
maus - my favourite excuse