Ég veit nú ekki hvað þú ert búin að missa marga þætti úr en hér er það sem er búið að vera að gerast í síðustu þáttum:
Toadie sagði Maggie að hann væri ástfanginn af henni og mér fannst hún nú bregðast frekar vel við því, sagði meðal annars að henni þætti líka vænt um hann!?!
Matt var í bílakappakstri með Leo( hann hoppaði upp í bílinn þegaqr hann var að fara að keppa) og Matt missti stjórn á bílnum, keyrði útaf og klessti á tré og keyrði í leiðinni á Harold greyið:( Núna er Glen strákurinn sem var í hinum bílnum í lífshættu og ef að hann deyr verður Matt ákærður fyrir mannsdráp af gáleysi. En hann verður allaveganna settur í fangelsi fyrir að stofna mannslífum í hættu. Síðan strauk Matt af spítalanum og er núna í einhverju húsi, Leo veit hvar hann er og kemur með mat til hans.
Karl fann hvar pabbi hennar Elly var og Elly hringdi í hann og bað hann um að hitta sig, þegar hann kom sagði hann Elly að Karl væri pabbi hennar,ekki hann.
Chloe, mamma hans Marcs er eitthvað ósátt við Steph og segir að hann muni ekki giftast henni:(
Stuart þarf að velja á milli Tracy og Dee og síðast núna í þættinum var Dee eitthvað ósátt við þetta allt saman. Ég held að hann muni velja Tracy( veit það samt ekki).
Þetta er það sem er búið að vera að gerast í síðustu þáttum:)
Ertu sátt??