Ég missti af einum þætti og var þá sagt að Toadie hefði sagt Maggie að hann væri hrifinn af henni.

Persónulega finnst mér þetta asnalegt. Hún er fullorðin, gift og tveggja barna móðir. Hann er búinn að þekkja hana heillengi og kynnist henni svo aðeins betur og er nú orðinn hrifinn af henni. Og hún er örugglega ekki nema svona 15 árum eldri en hann.

Ég er alls ekki að segja að fólk geti ekki verið hrifið af hvort öðru þó að annað þeirra sé mikið eldra, heldur finnst mér þetta bara furðulegt atvik að Toadie yrði ástfanginn af Maggie Hankock. Finnst að hann hefði frekar átt að verða ‘allt í einu’ svona hrifinn af Dee fyrst það varð að vera eitthver nágranni. Eða eitthverri af Scully stelpunum.