Í könnuninni sem er núna, er spurt hvort þú myndir vilja láta gera Neighbours mynd, og helmingur segir já.
Hvernig er hægt að gera bíómynd um svona “sápu”?
Hvað ætti að koma fram í Neighbours mynd? það væri aldrei hægt að enda hana á neinn hátt þar sem þessir þættir eru endalausir.
Ég er ekki að setja út á þann sem gerði könnunina heldur spyrja þá sem sögðu já, hvernig hugmyndir þeir hafa um svona mynd?:) þetta gæti orðið svoldið cool mynd ef þáttastjórnendurnir eru nógu hugmyndaríkir, til að geta gert heila bíómynd um þetta Neighbours fólk.