Jæja..
Þetta er í engri sérstakri röð, bara svona það sem ég man!
Toadie vann málið og nú eru allar stelpur á eftir honum, hann er búin að fá fjöldan allan af bréfum frá stelpum sem vilja fara með honum á deit. Hann er búin að hitta tvær þeirra, báðar svaka flottar. Önnur hætti ekki að tala og hin vildi að hann hjálpaði sér að komast framhjá öllum sektunum sem hún var búin að fá.
Darcy fékk vinnu í Perth, og kvöldið áður en hann átti að fara fóru hann og Dee á svona smá date, og sögðu hvort öðru svaka leyndarmál og eitthvað. Síðan rétt áður en að flugvélin átti að fara fékk hann símtal og gaurinn sem hann átti að taka við af fór ekkert svo Darcy fékk ekki vinnuna.
Joe fann allt stolna timbrið sitt og náði strákunum. Hann var voðalega áhugasamur um allt þetta skeitdæmi og fékk meirað segja að prufa brettið hjá einum. Svo náði hann að vera nokkuð almennilegur við gaurana og bauðst til að hjálpa þeim að koma upp svona skeitparki en þeir þyrftu sko að vinna hjá honum til að bæta upp fyrir stolna timbrið.
Ronnie er alveg að ganga af göflunum. Heldur að hún og Drew hafi átt í eitthverju hörku ástarsambandi og hótar að segja öllum hvernig maður Drew er! Og vitaskuld trúir henni engin.
Lou er allur að koma til og er orðin eins og hann á sér að vera.
Harold er alveg að kafna úr sorg og er búin að segjast ætla að selja húsið og Kaffistofuna. Hann vill bara fara burtu frá öllum þessum minningum.
Tad og Jess hættu saman, en ákváðu að vera samt áfram bestu vinir.
æ síðan man ég ekki meira..
Bætið endilega við og reynum nú að lífga þetta áhugamál aðeins við ;)