Í þessum þætti kom fram það sem flestir granna áhugamenn bjuggust við. Að þessi Patsy, barnfóstra Lou sé eitthver önnur en hún þykjist vera. Hún fór og tjékkaði á nýju pin númeri sem Lou fékk sent og hann treysti henni og opnaði og henti þessu fyrir framan hana. Michelle labbar inn á hana meðan hún er að róta í ruslinu og býður fram á aðstoð við pössun. Til að losna við Michelle þá auðvitað tekur Patsy, barnfóstra Lou's, vel í þetta og segir að Lou muni vera í sambandi við hana. Shell(Michelle) tók þessu sem að henni væri ekki vel við sig. Mér fannst eins og hún grunaði eitthvað slæmt um Patsy en hún bældi það niður. En hvað um það?.. Síðan tjekkar Patsy á korti Lou's og glottir. Þá var það atriði búið, og ekki meira Patsy atriði í þættinum sem og pistlinum mínum hérna. Well.. síðan er það annað að það er greinilegt að Flick sé eitthvað skotin í Joel enda er hann glæsikroppur eins og hann er oftast kallaður í þáttunum. Hún óð á hann þegar hún átti að kyssa hann í þáttunum. Honum finnst þetta væntanlega ótrúlega óþægilegt vegna aldursmuns þeirra. Ég held að honum finnist hún ekkert ljót eða neitt þannig, enda er hún glæsileg. En síðan endar þátturinn með því að hún leggur erfiða spurningu fyrir hann hvort að hann vilji koma með henni á opinbert ball með sér, og lýgur rosalega að honum. Það sem hún laug að honum var að Paul þætti óþægilegt að fara með henni vegna þess að hann vildi vera með stelpunni sem hann er hrifinn af. Og síðan endaði þátturinn með náttúrulega frosinni mynd af andliti Joels. En ein spurning brennur mér á vörum.. er Paul hrifinn af eitthverjari stelpu? Allaveganna finnst mér það ekki hafa komið nógu vel fram..

Kveðja
fixe