Jæja ég náði bara rétt restinni af sunnudagsþættinum svo ég hef ekki frá miklu að segja..

Allavega allt er á fullu með þetta “Wics for Kids” dæmi og Dione og Karl eru að þvælast með þessar hárkollur..

Lou virðist vera komin með svona “Nanny” sem á að vera að þrífa, passa og svona.. Eitthver vírdó gella..

Drew hefur ákveðið að flytja aftur til Oakey segist ekki nenna að hanga þarna og bíða, það sé komin tími fyrir hann til að “move on” Libby virðist vera alveg sama en Steph er alveg eyðilögð. Loks ákveður hún að segja Drew hug sinn en hún nær ekki að segja mikið meira en “Drew ekki flytja ég á eftir að sakna þín svo gríðarlega mikið” eitthvað í þá áttina.. En þá akkurat koma Libby og Dione og vilja láta Drew sitja fyrir í blaðinu útaf þessu Wic For Kids dæmi.. Hann segist gera það ef Steph fái að vera með.. hún sættir sig við það og þau taka nokkrar svona myndir allt voða gaman, svo þegar þau eru búnað taka myndirnar hleypur Steph út og mar sér það á Libby að hún er orðin soldið abbó..
Svo fer Drew að leitaf Steph en hún er í sturtu þegar hann kemur til hennar svo hann fer beint til Körtunnar og segir að hún hafi verið að segja honum eitthvað.. og þá óvart kjaftar Kartan frá öllu, segist hafa reynt að tala hana ofan af þessu.. og hreinlega segir Drew að hún sé svo hrifin af sér án þess að hann viti að hann viti það ekki.. Svo akkurat í því kemur Steph inn og þátturinn klárast….

Væri eitthver hérna til í að vera svo vænn að segja hvað gerðist fyrir utan þetta..