Þegar Skully fjöldskyldan kom fyrst í þættina fannst mér hún hundleiðinleg fyrir utan Steph og Felicity. En nú hafa hin helmingur fjöldskyldunar skánað til muna og manni er eiginlega farið að þykja vænt um karakterina. En það er aðeins eitt sem pirrar mig solldið og hefur gert frá því að fjölskyldan kom fyrst í þættina og það er hvernig Lyn klæðir sig. Greyið manneskjan hlýtur að vera blind fyrst hún gengur í þessum asnalegum fötum var það fyrsta sem ég hugsaði. Hún þarf virkilega á hjálp að halda við að klæða sig öðruvísi því að það er alveg merkilegt hvað sum af þessum outfitum sem hún er í geta verið hryllilega ljót. En dætur hennar á hinn boginn eiga geðveikislega flott föt og áág held að þær ættu að fara að hjálpa henni með að fylla fataskápinn sinn af nýjum fötum því að ég efast stórlega um að það leynist einhver flík sem er svona allt í lagi. En fyrir utan klæðaburðinn er Lyn fín manneskja. Ég hélt að ég mundi líka springa úr hlátri þega það kom í ljós að hún væri hárgreiðslukona því að ég var akkúrat að hugsa með mér að verri klipping væri ekki hægt að finna á karlmönnum einsog á eiginmanninum hennar. En líklega var hann of þrjóskur til þess að fara í klippingu. En mig minnir nú að hann sé búinn að fara í klippingu.