Loksins ákveð ég að skrifa þessa grein í þessu greinaátaki, áður en það verður búið ;)
Tom Scully er bróðir Joe Scully og ég man ekki alveg af hverju hann kom en hann hefur verið sem prestur í kirkjuni.
Hann og Susan náðu strax saman sem góðir vinir og við fengum að komast að því að Lyn (kona Joes) hafði verið hrifin af honum þegar hún og Joe voru nýbyrjuð saman, áður en Tom gerðist prestur.
Tom hafði líka verið hrifinn af henni en hún var auðvitað með bróður hans..
Tom hefur gefið öllum (eiginlega) ráð um ástarmál og fleira og fólki finnst gott að tala við hann um vandamál sín, enda prestur.
Það voru alltaf einhverjir neistar á milli hans og Susan en Susan vildi ekkert gera, enda nýskilin og Tom prestur!
Lyn hefur verið að reyna fá þau ekki til að vera saman og ef þau voru saman þá vildi hún vera líka hjá þeim svo hún gæti passað þau, svo ekkert myndi gerast..
Tom og Susan fóru saman á ráðstefnu sem síðan var hætt við vegna veðurs.
Tom fékk flensu og Susan sá um hann og reyndi að svæfa hann. Tom muldraði eitthvað um að hann elskaði einhverja vinkonu sína og Susan vildi fá að tala við hann um þetta..
Þau höfðu verið að forðast hvort annað í smá tíma eftir þetta.
Á endanum játaði Susan fyrir honum að hún bæri vissar tilfinningar til hans sem hún ætti ekki að gera og hún sagði að þau ættu líklegast ekki að vera vinir lengur vegna þessara tilfinninga.
Eftir nokkra þætti játar Tom fyrir henni að hann elski hana og þá kemur þessi koss sem við fengum að sjá í dag.
Tom er samt ekki viss hvað hann ætli að gera enda stór ákvörðun, hann segist ekki vera viss hvort hann vilji hætta öllu og byrja á lífi sem hann þekkir ekkert til.
Það sem ég væri til í að sjá með þeim væri að þau myndu enda saman.
Hann myndi hætta sem prestur og finna sér einhverja aðra vinnu og flytti inn til Susan. Ég veit samt ekkert hvað gerist og mjög spennandi að fylgjast með því hvað gerist :)
…Spurning hvað gerist svo :)
En takk fyrir lesninguna.