Þetta er aðeins í annað sinn sem að ég skrifa svona grein svo að hún verður kannski ekki eins góð og hinar. Ég ætla að skrifa um glæstar vonir, nágranna og leiðarljós.(ég mundi skrifa um O.C. og one tree hill en það eru ekki sápur)
Glæstar vonir:
-þegar Taylor komst að því að Ridge reyndi að stoppa Brooke í að giftast Grant og hætti við að giftast Ridge.
-Þegar Stephanie fékk hjartaáfallið.
-Þegar Macy og Brooke lentu í bílslysi og Macy dó.
-Þegar Rick komst að því að sonur hans og Amber var sonur Becky og lét ógilda hjónabandið.
-Þegar slangan drap næstum því Clarke.
-Þegar CJ fékk forræði yfir Eric.
(en það sem mér fannst skemmtilegast var þegar Eric þóttist vera trúlofaður Sally og svo fór Stephanie til Sally og sagði henni mjög kvikindislega frá litla bragðinu og mölvaði hringinn hennar með hamri)
Nágrannar:
-þegar Susan missti minnið.
-þegar Erin og þær veltu klósettinu sem Sky var á og Serena hló að henni.
-þegar Dee dó.
(það eru engin fleiri en uppáhaldið mitt í nágrönnum var þegar Lyn sá Tom og Susan kyssast og varð geðveikt afbrýðisöm)
Leiðarljós:
-Þegar Maureen dó. (hún átti ekki að deyja,hún var svo góð)
-Þegar Jenna og Roger sölsuðu undir sig Spaulding-samteypuna.
-Þegar Billy komst að því að Nadine laug að honum varðandi Peter.
-Þegar Harley og Mallet fóru. Ég sakna þeirra svo mikið.
-Þgar Billy og Vanessa giftu sig aftur.
-Þegar Alex kom aftur og sá Jennu og Roger í rúminu hennar.
-Þegar Mindy og Nick giftu sig.
(Uppáhaldsatriðið mitt var þegar Alex var að hræða Mindy á fósturlátunum og þegar Buzz kom með skjalið í réttarhöldin sem varð til þess að Jenna og Roger töpuðu Sðaulding)