Jæja, soldið margt sem gerðist í dag.
macy og Kimberly voru að tala saman og Kimberly finnst að Macy eigi að giftas Thorne. Macy hafði aldrei ýmindað sér að pabbi hennar ætti eftir að ganga með henni kirkjugólfið en nú var tækifæri til þess.
Macy hringi í Thorne og segist vilja koma til hans og tala við hann í eigin persónu, hann samþykkir það. Hann er alveg viss um að hún ætli ekki að giftast honum og kvöldið áður hafði Brooke verið hjá honum og þau kysstust nokkrum sinnum. Hún kom inná skrifstofuna og þau voru samþykk því að þetta var rangt hjá þeim en svo kysstust þau og í svo kom Macy inn á þau, how sad :(
Rick og Amber voru með barnið hjá lækni til að taka HIV próf. Rick hafði sagt Amber að munnvatn nægði, þessvegna samþykkti hún að fara. Hún vildi auðvitað ekki að tekið yrði blóð því að þá kæmust þeir að því að hann væri ekki sonur þeirra. Það var tekið blóð, það er skylda, annars hefði hún fengið barnaverndarnefnd á sig. Í lok þáttarins kom læknirinn inn og tilkynnti þeim að Amber og Rick hefðu verið heppin, væru bæði HIV neikvæð. En það var annað sem hann var hissa á, hann benti þeim á að ein af ástæðunum fyrir því að Amber hefði getað gefið Rick nýra, á sínum tíma, var vegna þess að þau væri í sama blóðflokki, B- … En daddara, barnið er ekki í sama flokki!!!! (Að sjálfsögðu því að þau eiga ekki barnið)
Verður spennandi að sjá hvað gerist næst..