Eins og allir vita þá er Amber komin heim með “barnið þeirra”. Hennar barn dó og hún fékk barn frænku sinnar í staðinn.
Kimberly er eitthvað treg og getur alls ekki hætt að hugsa um Rick sem þó er giftur Amber og á barn.
Macy, systir hennar, var hjá henni í dag að reyna að koma henni í skilning um að hætta að hugsa svona mikið um hann. Hún ætti að njóta þess að vera unglingur og skemmta sér. Hún væri með æðislegan kjól hjá Spectra sem Kimberly mætti fá á lokaballið en málið var að því var lokið og einhver bauð Kimberly en hún fór ekki. Macy virtist frekar pirruð á að Kimberly spáði svona mikið í Rick og gleymdi sjálfri sér alveg.
Persónulega finnst mér þetta væl í Kimberly frekar pirrandi, halló hún var varla með gæjanum, ef hún var það þá, en er samt viss um að þetta sé stóra ástin í lífinu og hún sé búin að missa af honum og kynnist aldrei sannri ást aftur og bla bla bla…
Thorne fór yfir til Brooke sem er alveg hand viss um að Amber og mamma hennar séu að fela eitthvað og hún ætlar sko ekki að láta þær eyðileggja fjölskylduna hennar.
Amber er eitthvað að ræða við mömmu sína um að hún geti ekki haldið þessu barni og vilji segja Rick að þeirra hafi dáið. Svo kemur Brooke og ryðst inná þær þó að Amber ætli að fara að sofa á þátturinn endar þannig að Brooke segist vita leyndarmálið hennar..
Daddara,, verður gaman að sjá þáttinn á morgunn..
kv. Poco.