Jæja það er nú margt að gerast hjá nágrönnum. Dee og Stuart að slá sér saman og Elly og Tad (eða það heldur Elly). En svo birtist unnusta Stuarts og ekki var hann ánægður með það, enda skiljanlega, hún heldur að hæun geti bara birst eins og ekkert hafi gerst, en ég held að hann sé samt það hrifin af Dee að hann vilji ekkert með hann hafa, en maður veit aldrei hvað gerist. Nú Steph og Marc eru náttúrlega trúlofuð og eru að fara gifta sig, en hvað með Flick, það er eins og hún sé ekkert að sætta sig við þetta, hún er náttúrulega hrifin af honum og er dálítið öfundsjúk en hún virðist samgleðjast þeim og er ánægð fyrir þeirra hönd.
Lou og Harold eru eitthvað að smjaðra fyrir Rosie.
Drew og Libby ganga ágætlega nema að Drew er að vinna alltof mikið en hann er farinn að minnka aðeins við sig.
Karl er að finna föður Elly og hún sá blað með nafni föður síns inn á skrifstofu Karls og hún spyr hann hvað þetta er og meira fáum við að vita í næsta þætti.
svona smá upplýsingar um hvað er að gerast:)
kelly