Í dag var alveg þáttur sem maður stóð á öndinni við að horfa á!
Ég ætla að segja frá honum í meginatriðum.
Það var allt í messi hjá aumingja Libby. Hún var lokuð inn í einhverju hesthúsi og var með hríðir. Svo urðu allir alveg stjörnuvitlausir þegar hún hringdi í Susan og lét hana vita og hún lét það ganga til pabba Drews og hann lét Karl vita. Svo þegar þeir kallarnir þarna Drew, Karl og Ron pabbi Drews voru komnir inn kölluðu þeir á sjúkrabíl og svo fór hún með þyrlu til Erinsbæjar.
Á sjúkrahúsinu voru Susan, Darcy og Elly (eða hvað sem hún frænka Susan heitir.)Og þar eignaðist hún strák á eðlilegan hátt af því að það var ekki tími til að gera það með keisaraskurði. En svo þegar hann var fæddur leið Libby útaf og þarna hjartalínan varð bein og hún var að deyja!!!
Woody fór að tala við Steph og sagði henni að nú væri hann frjáls, það væri enginn að elta hann. Svo þegar hann var búinn að segja henni allt um það þá sagði hann að hann ætlaði að flytja aftur norður í land og hann bað hana að giftast sér og dró fram rosa hring. Steph brosti örlítið en svo endaði atriðið.
ÞAÐ VERÐUR SKO GAMAN AÐ HORFA Á ÞÁTTINN Á MORGUN!!!!!!