Ykkur er bara andskotans nær að banna…
Höfundur þessa korks og meðstjórnendur hans komu ekki nálægt banni Lecters. Bann hans var auk þess þessu áhugmáli algjörlega óviðkomandi. Eftir því sem ég hef heyrt var hann bannaður í kjölfar deilu við annan áhrifamikinn notanda sem er nú hættur eða allavega óaktívur að mér skilst.
Svo það er bull að segja að hinir almennu hugarar sem stunda þetta áhugamál séu “skít-hræddir um að vera Bannaðir til eylífðarnóns fyrir það að tjá sitt álit”.
Auk þess er engum bannað að tjá skoðanir sínar hér, og hefur það reyndar aldrei komið til að menn hafi verið með svo áhrifamiklar skoðanir að þær hafi sært blygðunarkennd einhvers, allavega ekki sem ég man eftir síðan ég kom hingað.
Svo þetta er fjarstæða sem þú ert að halda fram, nema náttúrulega þú sért að tala um einhvern annan notanda sem var góður penni og stundaði sögu mikið og var svo bannaður, en mér sýnist ekki margir koma til greina.
Bætt við 9. mars 2009 - 19:03 Nema þú vitir meira en ég? Upplýstu mig þá.