Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Franski flugherinn, 1940 (5 álit)

Franski flugherinn, 1940 Málverk af fjórum frönskum flugvélum fyrir ósigurinn gegn Þjóðverjum árið 1940.

Tegundirnar eru Detwoine D.520 orrustuvél fremst, tvær Bloch MB 210 sprengjuvélar í miðið, og Breguet Bre.693 árásarvél aftast.

Þær eru þarna yfir miðri Parísarborg, Ile de France með Notre Dame þarna fyrir miðri mynd, og allir þekkja turninn þarna fjær! Það vantar sko ekki söguna í þessari borg.

Innrásin (12 álit)

Innrásin Innrás þjóðverja í pólland, September 1939

Berlínar múrinn (12 álit)

Berlínar múrinn Berlínarmúrinn.

Eftir seinni heimstyrjöldina skiptist Þýskalandi í fjögur svæði, sem voru stjórnuð af Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Sovétríkjunum. Gamla Höfuðborg Þýskalands Berlín var stjórnarsetur ríkjanna og var henni skipt upp í fjögur svæði.
Þó ætlunin hafi verið að sameina Þýskaland, varð kalda stríðið til þess að Bandarísku, Bresku og Frönsku svæðin sameinuðust í Federal Republic of Germany (ásamt vestur Berlín ) og Sovéska varð German Democratic Republic. ( og austur Berlín.)
Þýskalandi var skipt í tvennt og byggður var múr í gegnum Berlín sem var kallaður Bérlínarmúrinn.
Bygging múrsins hófst árið 1961 og hann féll 1989.
Á meðan múrinn stóð höfðu um 5000 tekist að flýja yfir múrinn, en 192 til 232 voru drepnir við flóttatilraunir sínar.

Gallipoli 1915-1916 (1 álit)

Gallipoli 1915-1916 Gallipoli var einn af misheppnaðari bardögum fyrri heimstyrjaldarinnar, af hálfu Bandamanna.

Á þessari mynd sjáið þið flutningsskip taka særða Breska hermenn um borð. Þetta sínir afar lítið brot af særðum hermönnum úr bardaganum við Gallipoli því 250.000 af hermönnum bandamanna annaðhvort dóu eða særðust ílla í bardaganum. Um 300.000 létust eða særðust hjá Tyrkjunum.

Hitler: The resurrection. (30 álit)

Hitler: The resurrection. Mér finnst þessi mynd ná því vel hvað Hitler er creepy. Mynd tekin 1930.

Hermann Goering (6 álit)

Hermann Goering Hér sjáum við Hermann Goering nánasta samstarfsmann Hitlers og var yfirmaður þýska flughersinns í WW2

Waffen SS (6 álit)

Waffen SS Þetta er einhverskonar “recruitment” auglýsing þar sem er verið að fá fólk til að ganga í Waffen SS.

Ef einhver veit eða skilur hvað stendur fyrir ofan Waffen SS á myndinni má hann alveg segja mér það…

Orrustan um New Orleans (9 álit)

Orrustan um New Orleans Árið 1812 lýstu hin nýstofnuðu Bandaríki yfir stríði við við Breta og marséruðu inn í Kanada sem var þá bresk nýlenda. Þeir bjuggust við hlýlegum viðtökum og fólkið í Kanada myndu taka á móti þeim með opnum örmum en svo var raunin ekki, Kanadabúar og Bretar börðust hetjulega og brutu innrásina á bak aftur, langt inn í Bandaríkin. Bandaríkjamenn áttu fullt í fangi með að verjast í mars árið 1915 þegar bretar höfðu sigrað Napoleon og gátu einbeitt sér að fullum krafti á þetta stríð. Þeir komu þá á skipum að Washington DC og réðuts inn í borgina og kveiktu í Hvíta húsinu og ætluðu að brenna alla borgina en þökk sé miklum rigninarroki sem fylgdi brann ekki nema hluti borgarinnar.

Þetta málverk er svo af því þegar bretar gengu á land í New Orleans með átta þúsund mans á móti fjögurþúsundmanna her Bandaríkjamanna. Þeir síðarnefndu sigruðu og var þetta stærsti sigur Bandaríkjamanna í þessu stríði. Þess má geta að orrustan var háð eftir að friðarsáttmálarnir höfðu verið undirritaðir en þeir kváðu um að öll hertekin lönd skildu send aftur til upphaflegra eigenda.

Einsatzgruppen (12 álit)

Einsatzgruppen Hér sést meðlimur af Einsatzgruppen andartaki áður en hann skýtur gyðing fyrir framan fjöldagröf í Úkraínu, 1942.
Einsatzgruppen voru hópar sem samanstóðu af starfsmönnum úr Gestapó, SS, Kripo o.fl. sem höfðu það starf að útrýma gyðingum, sígaunum, vottum og pólitískum andstæðingum Þýskalands aðallega í Austur-Evrópu.
Þeir byrjuðu í Póllandi, en stækkuðu svo fljótt og fylgdu Wehrmacht Austur í Úkraínu, Lettland, Eystland, Latvíu og ýms fleiri.

Spáð er að þeir hafi drepið yfir 1.4 milljónir á árunum 1941-1945.

Gröf Pattons (31 álit)

Gröf Pattons Já,hérna erum við með mynd af gröf Pattons og eins og flesti hérna vita var hann búinn að vera í crazy orrustum og svona í seinni heimstyrjöldinni og árið 1945, einum degi áður en hann átti að fara heim til Bandaríkjanna lenti kallinn í bílslysi og dó…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok