Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Rosaleg mynd (17 álit)

Rosaleg mynd Hér sést munkurinn Thich Quang Duc sem árið 1963 fór frekar öfgakennda leið í mótmælum sínum gegn víetnömsku ríkisstjórninni 1963 vegna kúgunar gegn búddistum. Eins og sést kveikti hann í sér (og lést þá skiljanlega stuttu síðar) úti á miðri götu en meðal “áhorfenda” var bandarískur blaðamaður sem sagði um atburðinn:

I was to see that sight again, but once was enough. Flames were coming from a human being; his body was slowly withering and shriveling up, his head blackening and charring. In the air was the smell of burning human flesh; human beings burn surprisingly quickly. Behind me I could hear the sobbing of the Vietnamese who were now gathering. I was too shocked to cry, too confused to take notes or ask questions, too bewildered to even think…. As he burned he never moved a muscle, never uttered a sound, his outward composure in sharp contrast to the wailing people around him.

Þess má geta að þessi mynd prýddi umslag plötunnar Rage Against the Machine (best þekktir fyrir slagarann Killing in the Name) eftir þá þekktu hljómsveit, en diskurinn kom út 1990 og þekkja kannski einhverjir myndina þaðan.

Benjamin Franklin (3 álit)

Benjamin Franklin Benjamin Franklin

Josep Mengele (9 álit)

Josep Mengele Josep Mengele “Engill dauðans”

Josep var SS lækir í WWII og stjórnaði grimmilegum aftökum og tilraunum á föngum sínum.
Hann hefur löngum verið talin einn sá grimmasti.

Áströlsk hermerking (11 álit)

Áströlsk hermerking þetta er hermerkin sem Ástralski herinn var með í WW2

Berlin 1945 (1 álit)

Berlin 1945 Þótt Berlin og Þinghúsið Reichstag séu illa blöstuð er alltaf hægt að finna tíma til að svamla aðeins.

Gull Hitlers (6 álit)

Gull Hitlers Tekið úr Lifandi vísindi nr. 3/2006

“Berlín vorið 1945: Úrslit heimsstyrjaldarinnar eru ráðin. Úr austri nálgast Rauði herinn óðfluga Berlín, og bandarískar og breskar flugvélar láta sprengjum rigna yfir höfuðborgina í síminnkandi veldi Adolfs Hitlers.

Í þessu feiknarlega sprengjuregni láta 2000 borgarbúar líf sit. Valdhafar eru samt með meiri áhyggjur af afdrifum Ríkisbankans. Þar geyma nasistar ótrúleg auðævi í tonnatali gulls og stöflum af erlendum gjaldeyri - svo ekki sé minnst á eðalsteina og tannagull úr útrýmingarbúðunum.

Eftir sprengjuárásirnar verður bankastjórinn Walter Funk uggandi um öryggi auðæfanna. Hann sannfærir Hitler um að flytja verði gullið úr borginni eigi það ekki að glatast. Fyrst eru flutt um 250 tonn af gulli, 1.000 sekkir með peningaseðlum og 400 tonn af öðrum gersemum, frá m.a. söfnum í Berlín, til saltnámu í Merkers í suðaustur Þýskalandi. En þann 4. apríl náði Patton saltnámunni á sitt vald og klófesti fjársjóðinn. Í Ríkisbankanum var þó enn nokkuð eftir af gulli. ”

Það er ekkert smá sem þeir hafa átt af gulli. En í dag er talið að 3,7 tonn af nasista gullinu sé enn ófundið og eru víst margir sem hafa leitað í mörg ár án þess þó að finna neitt, en hver veit;)

Þýsk sjónvarpsútsending (4 álit)

Þýsk sjónvarpsútsending Stillimynd ríkissjónvarps Þriðja Ríkissins.

Albert Einstein (12 álit)

Albert Einstein Einstein á ströndinni.

Albert Einstein, 14. mars 1879 – 18. apríl 195, var bráðgreindur kennilegur eðlisfræðingur. Hann fæddist í Ulm í Þýskalandi og var af gyðingaættum. Hann er einn af best þekktu vísindamönnum 20. aldarinnar. Hann lagði til afstæðiskenninguna — sem er líklegast hans þekktasta verk — og hafði einnig mikil áhrif á skammtafræðina, safneðlisfræðina og heimsfræðina. Hann fékk nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1921 fyrir útskýringu sína á ljóshrifum árið 1905 (Annus Mirabilis; þetta ár komu út þrjár greinar eftir hann, hver þeirra olli straumhvörfum í eðlisfræði) og verðlaun fyrir „þjónustu sína við kennilega eðlisfræði“.

Þúsundáraríkið (5 álit)

Þúsundáraríkið Þúsundáraríkið með einsflokksbundnu ríkisstjórnina byggðist upp á röð, reglu og aga. Eins og sést voru Þjóðverjar Þriðja Ríkisins þar fremstir í flokki.

Pinochet (4 álit)

Pinochet Smá viðbót við greinina um Chile… Hér sést Augusto Pinochet ásamt herforingjaklíku sinni skömmu eftir valdaránið. Berið þetta saman við myndina sem fylgir greininni (þar sem hann spjallar við Allende skömmu fyrir valdaránið), og takið eftir hversu gjörbreytt hans fas er hér orðið. Hér er hann skyndilega orðinn hinn erkitýpíski Suður-Ameríski einræðisherra. Hann hafði allan sinn feril verið úlfur í sauðagæru.

Af honum er það annars að segja að hann er enn á lífi, kominn yfir nírætt. Hann lét friðsamlega af völdum árið 1990, gegn því að verða ekki sóttur til neinna saka. Hann var þó handtekinn í London árið 1998, (þar sem hann var að heimsækja Margaret Thatcher, sem frægt varð) en sleppt eftir miklar lagadeilur. Síðan þá hefur hann verið stjórnmálamönnum og lögfræðingum þriggja landa (Bretlands, Spánar og Chile) endalaus höfuðverkur, og ekki hefur reynst unnt að dæma þetta gamalmenni. Líklega verður mörgum létt þegar hann kveður þennan heim, sem hlýtur að verða bráðlega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok