Já, hann var nú ansi tæpur áður en hann var bannaður héðan, en af bloggsíðunni að dæma er hann endanlega búinn að tapa sér í sínum skrýtna hugarheimi núna.
Hann var ekki bannaður fyrir neitt sem hann gerði á þessu áhugamáli. Hann var hinsvegar víða þekktur fyrir afar vafasaman málflutning um menn & málefni (sérstaklega samkynhneigð). Hleypti jafnan öllu í bál & brand, og þeir stjórnendur sem sendu honum kurteislegar viðvaranir, fengu til baka ill-skiljanlegar ávirðingar og aðdróttanir.
Hann var að mig minnir settur í “kælingu”, tímabundið bann tvisvar, en hélt áfram uppteknum hætti. Auðvitað voru einhverjir sem höfðu gaman að því að egna hann, en sá ætti að vægja sem vitið hefur meira. Það hafði hann því miður ekki, og á endanum fór það svo að “yfirvöldin” hér fengu nóg. Skiljanlega, því miður.
_______________________