Merkilegt með fræga einræðisherra (þó mis-stórir séu); Það virðist hreint ekki borga sig að giftast inní familíur þeirra, eða tengjast þeim fjölskylduböndum á nokkurn hátt.
Þessi náungi er auðvitað gott dæmi, en það er líka Ciano greifi á Ítalíu. Og það aumingjans fólk sem tengdist Stalín í gegnum syni hans eða dóttur. Eða Ceasescu-familían í Rúmeníu. Og svo náttúrlega tengdasynir Saddams heitins.
Ef þú ert á deiti og spyrð dömuna hvað pabbi hennar gerir, og hún svarar Jah, hann er svona í hinu og þessu sko, hann svona reynir að stjórna landinu… ofsa erfitt, óvinir útúm allt …Segðu bara takk fyrir kvöldið og farðu heim! :)
_______________________