Í mörgum svona tilfellum var bara um hreinasta sadisma að ræða, frekar en að refsingar væru í nokkru einasta samræmi við brotið.
Ég ætla mér nú síður en svo að fara að afsaka þrælahald. En þó voru sem betur fer ekki allir þrælahaldarar pjúra illmenni, sumir voru “sanngjarnir” (svo langt sem það hugtak nær í þessu samhengi!) Hjá þeim var þrælum ekki keyrt út, fjölskyldur þeirra voru ekki “seldar í sundur”, og þeir bjuggu við sæmilegan húsakost og fæði.
Tilfellið í suðurríkjum Bandaríkjanna var að margir þrælar á stórum plantekrum bjuggu við skárri lífskjör en fátækt hvítt fólk (“white trash” sem kallað var). Og öfund yfir því er jafnvel talið vera þáttur í því stæka svertingjahatri sem greri um sig hjá þeim þjóðfélagshóp.
_______________________