Sæll,
Góður punktur. Reyndar voru bæði Bretar og Frakkar búnir að ábyrgjast sjálfstæði Tékkólóvakíu líka en guggnuðu á því eins og þekkt er, sbr. t.d. Münchenar-samningarnir. En það er rétt sem þú segir að aðalatriðið er það að menn eru allajafna sammála um að Bretar og Frakkar hefðu lýst yfir stríði við Þjóðverja fyrr en síðar og því er innrásin í Pólland talin vera upphaf styrjaldarinnar, fyrsta skrefið.<br><br>Með kveðju,
Hjörtur J.
“Fylkið ykkur jafnan undir merki þeirra er vilja vernda og efla íslenzkt þjóðerni og íslenzka tungu og reynið ávallt að fylgja málstað þeirra sem berjast fyrir því sem er rétt, gott og fagurt.” -Margrét Jónsdóttir, skáldkona, höfundur ljóðsins “Ísland er land þitt”.
“Það er fyrst og fremst um það að velja, hvort Ísland fær að ala íslenzka þjóð … eða hvort landið á að verða selstöð fjarlægra milljónaþjóða og gröf sinnar eigin þjóðar …” -Hr. Sigurbjörn Einarsson, biskup Íslands.
“Við verðum … að varast það að vera of bláeyg í afstöðu okkar til aðflutnings fólks. Nágrannalöndin hafa mörg hver þurft að viðurkenna að mikill munur á almennri afstöðu fólks til grundvallarreglna mannlegs samfélags getur leitt til vandræða.” -Sigurður Guðmundsson, fyrrv. forstöðumaður Þjóðhagstofnunar.