Vísir, 16. feb. 2007 20:56
Nasistavín undir hamarinn
Flaska af Nasistavíni með mynd af Hitler verður boðin upp í Plymouth í Bretlandi á næstunni. Rauðvínsflaskan “Fuhrerwein” er frá árinu 1943 og markaði 54 ára afmæli Hitlers.
Á miðanum á flöskunni er mynd af Hitler í hátísku jakkafötum með bindi. Annar miði á hálsinum skartar mynd af erni sem situr ofan á hakakrossinum.
Á fréttavef Ananova kemur fram að flaskan hafi fundist nýlega í bílskúr í Frakklandi.
Vínflaskan er innsigluð, en ekki er talið ráðlegt að drekka 12 prósent vínið vegna aldurs.
Uppboðshaldarinn Paul Keen sagði að flaskan væri geysilega sjaldgæf; “Ég hef hvorki séð, né heyrt, af nokkru þessu líkt á mínum 20 ára ferli sem uppboðshaldari.”
Búist er við að flaskan fari á 70 þúsund íslenskar krónur, í það minnsta.
http://www.visir.is/article/20070216/FRETTIR02/70216105
Hvað segiði, á ekki að skella sér út og bjóða í þetta? :D
_______________________