Hún var eftir því sem ég best veit, aldrei þýdd á íslensku. Ekki það að hún hefði örugglega selst sæmilega, en líklega hefur hreinlega enginn nennt að standa í því að þýða hana og gefa út.
Ég á hana á ensku, en hef aldrei nennt að lesa hana í gegn. Þetta eru sirka 1000 síður af ósamstæðu og illa skrifuðu pólitísku þvaðri í uppskrúfuðum stíl. Á köflum er textinn hreinlega óskiljanlegur.
En ef þú hefur samt áhuga, myndi ég spyrja um bókina í Bóksölu stúdenta, þar fékk ég mitt eintak fyrir all-mörgum árum síðan.
_______________________