Þú gleymir því að það voru Þjóðverjar sem réðust inn í USSR, þeir fóru ekki með þá hermenn sem gáfust upp líkt og aðra hermenn sem þeir börðust við, þeir neituðu hermönnum frá USSR öllum þeim réttindum sem þeir höfðu samkvæmt alþjóðalögum meðan stríðsfangar annara landa líkt og hermenn UK og USA fengu þá meðferð sem alþjóðalög sögðu fyrir um. Þjóðverjar voru álíka miskunarlausir gagnvart óbreittum borgurum og í raun má segja að Þjóðverjar hafi hagað sér eins og villimenn gagnvart Rússum, svo mikið að þeir urðu skíthræddir er USSR fór að sækja að Berlín því þjóðverjar vissu að stríðið á austurvígstöðvunum hafi farið algerlega úr böndunum og að rússneskir hermenn gætu hreinlega ekki verið miskunsamir! Kaldhæðnislega kann þetta að vera ástæðan fyrir því hversvegna þjóðverjar börðust af svo mikilli hörku allt til hins grimma enda.