Afríkumen flokkuðust sem “Alien races” hjá Þýska ríkinu á þessum tíma, en honum var nákvæmlega sama um þá, þeir voru ekki inn í Evrópu, og höfðu aldrei gert neinum neitt illt.
Hann var nú alls ekki jafn mikið á móti kapítalisma eins og hann vildi vera láta. Stóru þýsku auðhringirnir styrktu hann til valda, og græddu stórar fúlgur á hervæðingu hans.
Ef þú gleymir einhverju, þá er það að hann var á móti drykkju, reykingum og kjötáti. En hann mátti eiga það að reyndi ekki að troða þeim skoðunum uppá aðra, ólíkt mörgum í dag!
hann getur ekki hafa verið á móti lýðræðis sinnum, flokkurinn hans var stofnaður sem lýðræðis flokkur. þjóðernir sósíalistar, og kapitalistar þýskalands stórgræddu á honum. annars held ég að hitt hafi verið flest allt rétt. hver hatar ekki sígauna og feminista.
Kynþáttastefnan: heilbrigðir aríar > allir aðrir en heilbrigðir aríar.
SS var með sérstakt teymi af læknum sem að leitaði uppi fólk t.d. í Póllandi sem gæti haft eitthvað aría-blóð í sér. Það er augljóst að tilgangurinn var á endanum að drepa allt og alla sem ekki voru aríar og endurbyggja aríska guðmanninn.
Þar sem ríkisstjórnin hans var fasísk var hann að sjálfsögðu á móti öllu sem gæti grafið undan henni (lýðræðisbarátta hverskyns, mannréttindasamtök etc.).
Það er held ég auðveldara að skilgreina hverju Hitler var samþykkur frekar en öfugt, sá listi er mikið styttri :)
Af hverju misnotuðu Íranska orðið “aryan” það þýðir einhver sem er Indó-Írani, Nafnið Íran þýðir „land aríanna“ , Og mannfræðingar sögðu að “Nordic” var rétta orðið.
Af því að þessi “speki” þeirra var álíka ómerkileg og stjörnuspeki, þú valdir bara einhvert flott nafn og gafst því einhverja skilgreiningu sem var út í hött. Ef þú lest þér til um goðafræðina sem þeir trúðu sumir hverjir á (þá sérstaklega SS liðið) þá sérðu hvað þetta er mikil della.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..