Sæll,
Þetta er án efa merkilegur hlutur. Það sem hins vegar kemur einkum til álita, þegar meta á verðmæti miðans, er það hversu margir slíkir miðar eru til í heiminum og í hversu góðu ásigkomulagi þinn miði er. Bezt er að spyrja einhvern sérfræðing um málið sem hefur ekki sjálfur neinna beinna hagsmuna að gæta varðandi málið. Það þýðir t.d. ekkert að biðja einhvern mögulegan kaupanda um álit þar sem hann mun að sjálfsögðu reyna hvað hann getur til að ná kaupverðinu niður.<br><br>Með kveðju,
Hjörtur J.