Íslendingabók
Íslendingabók er elsta sagnaritið um sögu Íslands. Hún fjallar um sögu landsins frá upphafi og allt til ársins 1120. Rit þetta er mjög verðmætt og er ein merkasta heimild Íslands um þennan tíma. Segir hún frá dvöl papa, írskra einsetumunka, á Íslandi, frá landnámi Íslands, frá stofnun Alþingis o.m.fl. Íslendingabók er skrifuð um 1130 af Ara fróða Þorgilssyni.
Íslendingabók fjallar að mestu æeyti um Landnám Íslands sem að stóð frá um 870 til 930 eftir Krist og er þessi tími kallaður landnámsöld og er fjallað um hverjir byggðu landið áður en Landnámsmennirnir komu til Íslands. Og hverjir byggðu landið eftir Landnám allt til ársins 1120.
Áður en landnámsöldin hófst, segir í Íslendingabók að papar (írskir einsetumunkar) hafi dvalið hér á landi um stund. Paparnir fóru svo héðan um það leyti er landnámsmennirnir komu, líklega vegna þess að þeir vildu ekki vera í samfélagi með heiðnu fólki.
Landnáma segir að víkingurinn Naddoddur frá Færeyjum hafi komið hingað fyrstur norænna manna. Hann stoppaði hér stutt en gaf landinu þó nafnið Snæland.
Sænskur víkingur, Garðar Svavarsson, á að hafa komið hingað á eftir Naddoddi. Sagt er að hann hafi siglt í kringum landið og verið fyrstur manna til að dvelja hér um vetur. Hann skýrði landið Garðarshólma en þegar hann fór urðu eftir þrír förunautar hans og voru þeir fyrstu norrænu mennirnir sem settust að á Íslandi en eru þó ekki sagðir landnámsmenn.
Norskur víkingur, Hrafna-Flóki var sá síðasti sem kom til landsins á undan fyrsta landnámsmanninum. Hann tók með sér búfé og fylgdarlið því hann ætlaði að setjast að á landinu. Flóki gleymdi að afla vetrarforða fyrir búféð um sumarið svo það var allt dautt eftir veturinn. Eftir þessi mistök Flóka fór hann aftur til Noregs og skírði landið sínu núverandi nafni, Ísland.
Fyrsti landnámsmaður Íslands og sá frægasti var Ingólfur Arnarson. Hann er sagður vera sá fyrsti er hér nam land vegna þess að hann settist að á Íslandi til frambúðar sem hinir fyrrnefndu gerðu ekki. Ingólfur Arnarson var frá Dalsfirði í Noregi. Hann kom til landsins ásamt fóstbróður sínum, Hjörleifi, vegna deilna sem þeir komu sér í í heimabæ sínum. Fyrst komu þeir til landsins í þeim tilgangi að kanna það og dvöldu hér í um eitt ár. Að nokkrum árum liðnum komu þeir aftur til að nema land. Ingólfur byggði sér bæ í Reykjavík og lagði undir sig allt land vestan Ölfusár, Öxarár og Brynjudalsár.
Hjörleifur var aftur á móti ekki jafn heppinn og Ingólfur og var drepinn áður en hann náði að helga sér land. Á eftir Ingólfi komu fleiri og fleiri landnámsmenn til Íslands, aðallega norrænir víkingar. Þeir menn sem ætluðu að nema land urðu að vera sæmilega hraustir og duglegir því að leiðin til Íslands var mikið þrekvirki og einnig var landið sjálft torfært. Vegna þessa gátu einungis um 20 til 30 manns verið um borð í hverju skipi.
Talið er að víkingar hafi farið í þessar ferðir aðallega vegna mikillar fólksfjölgunar og plássleysis í þeirra heimalandi. Tækniframfarir á þessum tíma voru miklar og þá sérstaklega í siglingum sem gerði það að verkum að víkingar gátu ferðast æ víðar og siglt til fjarlægra landa s.s Íslands sem áður var nánast ógerningur.
Landnáma greinir frá því að er landnámi lauk hafi um 435 manns numið land á Íslandi. Þá bjuggu 107 á Suðurlandi, 137 á Vesturlandi, 118 á Norðurlandi og 73 á Austurlandi. Árið 930 er sagt að landnámi hafi lokið og menn hætt að flytja til landsins.
KV. eysteinn